Hringurinn

Hringurinn er kvenfélag, stofnað árið 1904. Félagið hefur að markmiði að vinna að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna. Aðalverkefni félagsins um áratugaskeið hefur verið uppbygging Barnaspítala Hringsins. Mörg önnur verkefni, sem tengjast veikum börnum, hafa verið studd og styrkt. Þau stærstu eru uppbygging Barna- og unglingageðdeildar Landspítala og rekstur Sjónarhóls, ráðgjafamiðstöðvar barna með sérþarfir.

Hringurinn Í félaginu eru nú 335 konur á öllum aldri. Félagsfundir eru haldnir einu sinni í mánuði á veturna, félagskonum til fræðslu og skemmtunar. Starfsemin byggist hins vegar fyrst og fremst á því mikla starfi sem fram fer í nefndum félagsins.

Fjáröflunarleiðirnar eru söfnunarbaukar, sem staðsettir eru víða, s.s. í Leifsstöð, jólakaffi og happdrætti, sem haldin eru á aðventunni á hverju ári, jólabasarinn, sem haldinn er í nóvember á hverju ári, minningarkortin, sem seld eru allt árið, jólakortin og veitingasalan í Barnaspítalanum.

Hringurinn hefur heimasíðuna www.hringurinn.is

Hefur þú áhuga á að taka þátt? Hafðu samband við formann Hringsins, Önnu Björk Eðvarðsdóttur, annabjork (hjá) hringurinn.is. Hér má nálgast umsóknareyðublað um inngöngu í Hringinn.