Hvítabandið

Hvítabandið var stofnað 17. apríl 1895 og hét þá fyrst Bindindisfélag kvenna. Var Ólafía 
Jóhannsdóttir aðalhvatamaður 
að stofnun þess en Hvítabandið er næst elsta kvenfélagið í Reykjavík. Félagið gerðist aðili að Kristilegu alheims bindindisfélagi kvenna á stofnári sínu og er nafni þess var breytt í The White Ribbon, tók félagið hér upp nafnið Hvítabandið.

Það voru um 18 konur sem voru stofnfélagar en þeim fjölgaði ört og urðu 50 um sumarið 1895. Í dag er svipaður fjöldi í Hvítabandinu og það er opið bæði konum og körlum og er einn karlmaður í félaginu.

Hvítabandið lógó

Frá upphafi hefur Hvítabandið helgað sig mannúðar- og líknarmálum. Einkunnarorð félagsins eru: “Fyrir Guð, heimilið og þjóðina.”

Sjúkrahús Hvítabandsins við Skólavörðustíg sem félagið reisti á eigin kostnað og starfrækti í tæpan áratug var vígt 18. febrúar 1934 og voru sjúkrarúmin 38. Sjúkrahúsið var fyrst rekið sem sjálfseignarstofnun en síðar var Reykjavíkurborg afhent eignin að gjöf með öllum áhöldum og innanstokksmunum. Hefur félagið alla tíð haft sterka tengingu við sjúkrahúsið og látið sig starfið þar varða. Í dag er þar rekin göngudeild geðdeildar frá Landsspítalanum fyrir fólk með átröskun.

Í tilefni af 100 ára afmæli félagsins árið 1995 var gefin út bókin Aldarspor sem Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur ritaði fyrir félagið og er þar rakin saga félagsins í máli og myndum.

Fundir eru haldnir einu sinni í mánuði yfir veturinn, fyrsta miðvikudag, á Hallveigarstöðum við Túngötu. Er gjarnan reynt að bjóða upp á fræðslu- og skemmtiefni. Þá er einnig farið í ferðalög á sumrin og er þátttaka mjög góð.

Nýir félagar eru ávallt velkomnir. Félagið er með heimasíðu.

Aðalfjáröflun félagsins er verslun sem hefur verið rekin frá árinu 1986 í Furugerði 1 þar sem eru þjónustuíbúðir aldraðra. Áður fyrr byggðist fjáröflun eingöngu á árlegum basar og merkjasölu.

Hefur þú áhuga á að taka þátt? Hafðu samband við formann félagsins, Þorbjörgu Guðmundsdóttur, sími 820-9491, netfang: hvitabandid (hjá) hvitabandid.is eða mættu á fund Hvítabandsins en allir fundir félagsins eru auglýstir á heimasíðunni www.hvitabandid.is