Alma Möller landlæknir valin kona ársins og Eliza Reid fékk hvatningarviðurkenningu BKR á 105. ársþingi BKR 26. maí 2021.
Ölmu Möller landlækni þarf ekki að kynna en henni má segja var kastað í djúpu laugina í byrjun mars í fyrra þegar Covid19 skall á með fullum þunga.
Dag eftir dag birtist hún á skjánum sem hluti þríeykisins og hvatti okkur áfram. Þvo hendur, spritta, ekki fálma í andlitið, svo mætti lengi telja. Með fallegri og látlausri framkomu, samt ákveðin, vann hún sér inn virðingu þjóðarinnar.
Alma er fyrsta konan sem gegnir stöðu landlæknis og brýtur þannig blað í sögu embættisins. Hún tók við því starfi 1. apríl 2018. Áður átti hún langan feril sem læknir og er sérsvið hennar svæfingar og gjörgæsla.
Eliza Reid forsetafrú. Fyrirmynd kvenna á íslandi.
Fyrir hönd allra kvenna á Íslandi hlýtur Eliza Reid forsetafrú hvatningarviðurkenningu Bandalags kvenna í Reykjavík fyrir árið 2020. Konur landsins hafa sýnt mikla samstöðu og verið hver annarri hvatning í baráttunni við Covid-19 og þar er Eliza Reid forsetafrú í fararbroddi. Hún er því verðugur viðtakandi viðurkenningar fyrir hönd allra kvenna á Íslandi árið 2020.