Jólafundur Bandalags kvenna í Reykjavík verður haldinn fimmtudaginn 21. nóvember kl. 19:30 að Hallveigarstöðum, Túngötu 14.
Húsið opnar með léttum veitingum / jólaglöggi kl. 19:00.
Dagskrá fundarins:
- Ávarp formanns BKR
- Sigrún Pálsdóttir les upp úr nýútkominn bók sinni, Sigrún og Friðgeir – Ferðasaga
- Dagmar Sigurðardóttir, formaður Hvítabandsins, afhentir gjöf mætrar Hvítabandskonu, Ragnhildar Einarsdóttur, sem safnaðist í tilefni 80 ára afmælis hennar í haust
- Happdrætti til styrktar Starfsmenntunarsjóði ungra kvenna
Veitingar: Heitt súkkulaði og meðlæti að hætti “Ásdísar”.
Sigrún Pálsdóttir verður jafnframt með bók sína til sölu á sérstöku tilboðsverði fyrir gesti fundarins.
Við hlökkum til að sjá ykkur á jólafundinum og eiga ánægjulega kvöldstund saman – allir velkomnir!
Stjórn Bandalags kvenna í Reykjavík
Fyrirtæki sem gáfu vinninga fyrir happdrættið til styrktar Starfsmenntunarsjóði ungra kvenna.